Ljós og kveikingar
Ein eining á hvern ljósahóp í loftdósinni. Rofarnir þínir virka áfram, en ljósin kunna líka á tímastillingar, hreyfiskynjara og dimmun.
Ljós sem kveikja sjálf, tenglar sem slökkva á sér, hiti sem fylgir deginum og skynjarar sem láta vita. Allt í núverandi rofum og dósum, með Shelly-einingum sem virka án nettengingar við útlönd.
Þú svarar spurningum um rýmin, ljósin og tenglana. Áætlunin sýnir efnið og verðbil, engin skuldbinding.
Ein eining á hvern ljósahóp í loftdósinni. Rofarnir þínir virka áfram, en ljósin kunna líka á tímastillingar, hreyfiskynjara og dimmun.
Orkumælir í töflu sýnir hvað húsið notar og hvenær. Tenglar með mælingu slökkva á því sem gleymist.
Hitastýring eftir svæðum, gluggatjöld sem fylgja sólinni. Allt stýrt úr einu appi eða Home Assistant.
Raflagnateikning með IEC-táknum, lagnaleiðum, vírum og töflu. Efnislisti með verðbili úr íslenskum verslunum, svo rafvirkinn þinn getur gengið beint í verkið.
Eingöngu efni og hönnun í áætluninni: vinna, dósir, rör og akstur koma inn í tilboðið þegar húsið hefur verið skoðað.
Sjö rými, þrettán ljósahópar með þrjá dimmaða, orkumælir í töflu og hreyfi- og hitaskynjarar í hverju rými. Rofar og lagnir óbreyttar, einingarnar fara í loftdósirnar.
Verð með VSK úr íslenskum verslunum haustið 2026, án vinnu. Raunverð ræðst af húsinu og því sem kemur í ljós við skoðun.
Snjallheimilið er Davíð á Akureyri. Áralöng reynsla úr rafvirkjun, menntun í tölvu- og netkerfum og eigið heimili sem hefur verið snjallt í mörg ár, með kerfi sem hann skrifar sjálfur og gefur út sem opinn hugbúnað fyrir Home Assistant.
Lausnirnar byggja á Shelly-einingum: þær sitja í núverandi dósum, virka á heimanetinu án skýs og tala við Home Assistant, Google og Apple. Engin áskrift, engin læsing við eitt vörumerki umfram það sem þú velur sjálfur.
Tenging við rafkerfi hússins er unnin af löggiltum rafvirkja í samræmi við reglugerð um raforkuvirki. Snjallheimilið sér um hönnunina, efnið og uppsetningu hugbúnaðar.
Spurning, hús sem þú vilt láta skoða, eða bara forvitni? Skrifaðu nokkrar línur. Ef þú vilt verðbil fyrst, byrjaðu á áætluninni, þá fylgja svörin með fyrirspurninni.